Hjólum saman í skólann
besta leiðin til að byrja daginn brosandi :)
Hjólastrætó er hópur barna og foreldra sem hjóla saman ákveðna leið í skólann á föstum tímum - eins og strætó, en á hjólum og með tónlist.

Tímatafla
Næstu ferðir
Engar ferðir á döfinni.
Leiðarkerfi
Virkir hjólavagnar
Um Hjólastrætó
Hjólum saman
Ímyndaðu þér: það er mánudagsmorgunn, börnin eru kát og hjóla saman í einum hópi eftir fastri leið í skólann. Foreldri fremst, annað aftast, og á milli, hjólastrætó í praxís.
Hjólastrætó er einföld hugmynd: við hjólum saman, eftir tímatöflu, eftir fyrirfram ákveðinni leið og söfnum börnum saman á leiðinni, alveg eins og strætó.
Það er öruggara að hjóla saman í hóp, það hefur félagslegt gildi og foreldrar geta skipst á að vera fararstjórar. Best af öllu er þetta er svo fín leið til að byrja daginn í góðu skapi.
Spurt og svarað
Algengar spurningar
Hver má vera með?
Öll börn sem geta hjólað sjálf og treysta sér í umferð undir leiðsögn fararstjóra eru velkomin. Foreldrar mega endilega líka hjóla með, sérstaklega ef þeir vilja taka að sér fararstjórn.
Hvað þarf barnið að hafa með sér?
Hjól sem er í lagi, einhverskonar endurskin í myrkasta skammdeginu og hjálm (skylda). Klæðnaður eftir veðri, íslenskt veðurfar krefst þess að við klæðum okkur eftir hitamælinum, ekki dagatalinu.
Hvað ef það er rigning eða snjór?
Við hjólum í flestu veðri. Ef veður er hættulegt (mikill ís, ofsaveður) þá tilkynnum við aflýsingu á síðunni og með pósti samdægurs.
Hver ber ábyrgð á börnunum?
Foreldrar bera alltaf ábyrgð á eigin börnum. Fararstjórar leiðbeina hópnum og passa upp á tímasetningar, en þeir taka ekki yfir foreldraábyrgð.
Er virkilega hjólað á götunni?
Já við reynum að finna leiðir sem eru ekki í mikilli umferð. En þar sem ekki eru hjólastígar, þá segja umferðareglurnar að ungir vegfarendur mega hjóla í umferð með 15 ára eða eldri sem stjórna ferðinni.
Hvernig eru handamerkingarnar?
Við notum tækifærið og kennum krökkunum að rétta upp hönd þegar við stoppum og svo rétta hönd til hægri eða vinstri þegar við beygjum.
Hvernig get ég skráð mig sem fararstjóra?
Sendu póst á umsjónarmann hjólavagnsins (sjá síðu hjólavagnsins) eða á gommit@gommit.com. Við erum alltaf að leita að foreldrum sem vilja vera með.
Hvaðan kemur innblásturinn?
Hjólastrætó er innblásið af alþjóðlegu „bike bus“ hreyfingunni — börn og foreldrar hjóla saman í skólann eftir fastri leið. Myndbandið hér að neðan sýnir hvernig það lítur út í praxís.